|
|
15.10.2006 00:09:17 / sassa89
»
01.05.2006 21:06:30 / sassa89
hvaða hvaða aldrey neinar skoðanir á neinu
hérna.. sko ég geri ekki neitt fyrir neinn sem gerir ekki
neitt fyrir neinn.. eða þússt.. æji bara svona málsháttur eða
eitthvað allir eru hættir að blogga á sínum síðum og
hættir að skrifa komment.. hvað á ég þá að lesa?!!!!
hvurslags.. fussumsvei. Ef allir ætla að hætta með sínar
síður þá er ég bara formlega líka hætt, nenni ekki að standa
í þessu.. þetta blog fór að vera boring eftir að orðið skítur
hætti að koma framm í bloggunum, lagði svo mikla áherslu á
allt jæja ef allir eru hættir þá er ég bara líka hætt,
adios amigos cya.
BTW
ef einhver hefur eitthvað um það að segja þá bara skrifa komment..
hvort sem þú ert ánægð/ur með þessa ákvörðun eður ei haha, annars
er mér sama skíttið á ykkur og lifið heil.. eða hálf.. hvernig sem
þið fílið það.
»
30.04.2006 16:25:41 / sassa89
haha lol smá Mist Eik í gangi hérna, lagið
heitir náttúrulega ekki Lordi heldur hljómsveitin haha, lagið
heitir hinsvegar Hard Rock Hallelujah en hvað með það...
Lettland er með doldið spes lag líka, nokkrir gaurar að
syngja heví ógeðslegt svona boyband lag, en það sem er töff
við það er að þeir nota engin hljóðfæri, helvíti nettur
anskoti. Pæling að halda bara með þeim.. á nefnilega svona
letlands fána þannig að maður getur veifað honum á milli laga
og sagt go latvia! Gaman að því..
»
28.04.2006 19:41:20 / sassa89
Er að vappa í gegnum þessi eurovision lög og
finnst þetta finnska lag bara ágætt, heitir Lordi, doldið
svona ACDC fílingur í því, fíla reyndar svo sem ekkert
sérstaklega ACDC reyndar..
Það verður gaman að sjá þetta lag alla vega í eurovision, loksinns
eitthvað rokk! Gaman gaman 
http://eurovision.tv/english/video_frameset.htm?currentpage=http://eurovision.tv/english/2284.htm
»
25.04.2006 16:28:00 / sassa89
»
24.04.2006 20:12:07 / sassa89
Jæja í tilefni þess að ég sé að fara í próf
þá ákvað ég að búa til próf um mig, þetta er skíta erfitt
próf og ég er alls ekki viss um að ég fengi 10 í því ef ég
tæki það þó að ég hafi samið það og það sé um mig, skora á
fólk að taka þetta, til að fá hátt á því þá þarf maður að
hafa þekkt mig doldið lengi eða þá að vera anskoti heppinn
hehe, good luck.
http://www.quizyourfriends.com/linkquiz02.php?quizname=060424160540-897612&
Jæja þá er ég allavega farin að drulla mér aftur í
lærdóminn.
»
21.04.2006 12:23:03 / sassa89
Bloggaði fyrir stuttu um tvo náunga sem
litu anskoti líkt út, er að horfa á hemma gunn þáttinn þarna
þar sem liðið er að syngja og eitthvað þannig, man ekki hvað
þetta heitir í mómentinu.. en það er allavega gaurinn þarna
úr stundinni okkar í þættinum og ég tók eftir því hvað hann
er helvíti líkur audda úr 70mín/strákunum, þeir dansa eins,
svona lappirnar í sundur og snúa sér á hælunum, þegar þeir
syngja eru þeir báðir á svipinn eins og þeir séu að drulla á
sig og sjónvarps fötin þeirra (fyrir utan því sem þeir
klæðast í vinnunni) eru í sama stíl þ.e. gallabuxur, einhver
bolur/skyrta og jakkafata jakki yfir. Svo ekki sé minnst á að
þeir vinna báðir við að gera sig af fífli í sjónvarpinu

»
20.04.2006 17:49:20 / sassa89
Jæja.. eftir allt saman þá endaði ég með sirka 1kg. af páskaeggi..
fékk tvö nóa síríus egg, eitt nr. 5 frá pabba og annað nr. 6 frá
múttu. Og ég sem hafði engann áhuga á að fá páskaegg  Át nú
reyndar ekki mikið af þeim, skildi eitt eggið mulið eftir inni í
stofu heima og hitt hjá gumma þannig að ég krosslagði bara fingur
og vonaði að þau yrðu étin, búið að éta eggið inni í stofu en efa
samt að hitt verði klárað frá mér...  En maður getur alltaf látið
sig dreyma  Ótrúlegt að þegar að maður var yngri þá
sætti maður sig ekki við neitt annað en stærsta eggið frá mónu og
stærsta eggið frá nóa og síðan át maður af öllum öðrum eggjum sem
maður sá.. djöfull hlítur maður að hafa orðið ofvirkur.. greyið ma
og pa  hehe
»
16.04.2006 12:34:35 / sassa89
»
14.04.2006 12:17:32 / sassa89
Fór um daginn í blíðunni í sund með ónefndu
vinkvenndi mínu, ákváðum að bara rífa upp gömul hjól sem hafa
verið úti í nokkra vetur og alveg að riðga í spað, og
hjóluðum á þeim upp að sundlaug, það var afar skrautleg ferð,
vinkvenndið mátti ekki hætta að snúa petölunum af hræðslu við
að hjólið gæfi upp öndina og hætti að rúlla. Og mitt hjól var
ekki skömminni skárra, keðjan var svo riðguð að hún vildi
ekki festast almennilega í dæminu sem hún á að vera í, það
kannast eflaust flestir við það að hjóla og skipta um gír og
keðjan er svona að hoppa á milli rása (eða hvað það nú er sem
þið viljið kalla þetta) þannig var minn hljólreiðatúr,
hoppandi á milli rása allann tímann þó ég væri alltaf í sama
gír.
Loksinns eftir hættulegann hjólatúr komum við að lauginni, var
doldið erfitt að labba eftir alla þessa hreyfingu en við höfðum það
þó af að skríða inn í klefa og vippa okkur í sundklæðin. Bökuðum
okkur í sól+heitumpottum, ákváðum að synda eina ferð í
djúpulauginni þar sem við vorum ekki vissar hvort við kynnum að
synda eftir öll þessi ár. Get ekki beint sagt að við höfum verið
neinir meistarar... en við komumst allavega yfir og aftur til baka,
held að nokkur hrukkudýr hafi fokið frammúr okkur í tuga tali og
fussum sveiað yfir hundasundinu okkar 
Að lokum var kominn tími til að hoppa upp úr og tjékka hvort
einhver óheppinn hefði stolið hjólunum okkar, en svo var ekki.
Hlussuðum okkur á hjólin og hjóluðum í krónuna að kaupa okkur
eitthvað ætt, en pældum ekki alveg í því hvar við ættluðum að éta
þennan anskota, sáum svo grashól og við hann voru bílastæði,
rúlluðum hjólunum í stæðin, skriðum upp brekkuna og undirbjuggum
okkur fyrir nartþ Kemur þá ekki jeppa kall sem ættlar að leggja í
stæði og þá tökum við eftir að við höfum lagt hjólunum í tvö
bílastæði, djöfull sá maður á manninum bræðina, vorum handvissar að
hann myndi koma út úr bílnum og lemja okkur í spað. Hann gaf okkur
í staðin illt augnaráð og sagði ekki neitt... jæja hann um það.
Hjóluðum svo heim og fengum okkur pulsu með einhverjum rugludöllum
stuttu eftir.

Tók mynd af því hversu snilldarlega við sprundin leggjum,
jeppinn þarna vinstramegin svo.
»
10.04.2006 12:12:44 / sassa89
»
07.04.2006 10:02:07 / sassa89
Jæja þá er þessi önn eiginlega bara búin!!
Á reyndar að mæta í íslensku á eftir en ég er á báðum áttum
hvort ég nenni að mæta... 2-3 vikur í prófin svo þannig að ég
get bara tjillað, og að sjálfsögðu slepp ég við dönskuprófið
því að ég er algjör briller! Hmm... briller.. gleraugu..
uhh... JÁ! Ég er nörd!! Segjum það bara! Ég er dönsku nörd!

Hef annars bara verið að pæla í páskaeggja kaupum
núna undanfarið, pæling hvort það sé góð fjárfesting.. Ég er
náttúrulega ekkert fyrir svona kúkabrúnt súkkulaði þannig að ég
held það borgi sig ekki, ættli ég kaupi mér ekki bara slatta af
yndislegu hvítu súkkulaði og helling af góðu nammi en ekki þessum
afgöngum sem þeir troða í páskaeggin. Ekki að ég sé með neina
fordóma fyrir þessu brúna.. en það er bara staðreind að hvítt
dóminerar.
»
06.04.2006 18:24:20 / sassa89
»
04.04.2006 12:51:08 / sassa89
"Never put a sock in a toaster."
Ég var að labba heim úr skólanum áðan og tók þá
eftir einum bíl sem var ponsulítið riðgaður og fór þá að pæla í því
hve sjaldgæf sjón það er að sjá riðgaða bíla í dag. Ég man það
þegar ég var lítil að það var allt fullt af riðguðum bílum út um
allt og það að eiga bíl sem hafði ekki nem einn pínulítinn riðblett
var svaðalega lekkert. Kannski er ekkert minna af riðguðum bílum í
dag samt.. kannski var þetta bara af því að alla mína æsku ók pabbi
um á riðguðum malbikstruntum frá rússlandi, þ.e.a.s. þegar hann var
átti bíla og ferðaðist ekki í strætó... Það er náttúrulega að miklu
leiti rússunum að kenna hversu ljótt um var að litast á Íslandi á
þessum tíma, þeir púsluðu saman einhverjum druslum og henntu þeim
til íslands, en þeir virðast þó hafa einhverja samvisku í sér þar
sem þeir hafa í gegnum árin verið að sanka þessum druslum að sér
og flytja þær aftur til rússlands sama í hversu ömurlegu
ástandi þær eru. Gott hjá þeim.

»
28.03.2006 19:35:42 / sassa89
Djísús hvað það er ekkert ætt búið að vera
í ísskápnum undanfarið.. rölti framm í eldhús til að fá mér
ís og ég sá leyfar af KFC Þær voru greynilega ferskar, ég
get séð það, hvað á það að þýða að spyrja mig ekki hvort ég
vilji fá?!! Æji.. ohh.. síðan sá ég pabba áðan og
ættlaði að byðja hann um að fara á KFC en þá var hann nýbúinn
að kaupa drasl handa mér í Bónus þannig að ég sleppti honum
við það.
Annars þá ættlaði ég bara að blogga um nýja
tengla flokkinn, hann heitir Bollywood. Þar er að finna textaðar
Bollywood klippur eftir mig, ég á eflaust eftir að bæta fleirum við
og mun þá merkja við þær klippur *nýtt*, ég býst allavega við
því.. lofa svo sem engu.. jæja njótið þess að horfa á
Bollywood klippurnar yfir poppskál.
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|
|